Almenn verkefni 2021

Heiti verkefnis : 

Afkoma og hreyfing Breiðamerkurjökuls og afrennsli leysingavatns til Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi;

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Leysingarvatn (og regn) af austurstraumi Breiðamerkurjökuls rennur við jökulbotn til Jökulsárlóns.  Með mælingum á afkomu Breiðamerkurjökuls fæst mat á heildarmagni leysingavatns frá jöklinum og með reiknilíkönum sem nýta gögn frá tveimur sjálfvirkum veðurstöðvum á jöklinum má meta hvernig afrennsli til lónsins dreifist með tíma. Mælingar á skriðhraða jökulsins inn í lónið og stöðu jaðarsins eru notaðar til að meta hve mikill jökulís brotnar af jöklinum og bráðnar í lóninu.  Með þessari rannsókn fæst mat á heildarmagni ferskvatns sem fellur til lónsins.  Einnig er fylgst með hraðri hörfun Breiðamerkurjökuls þar sem hann kelfir í Jökulsárlón og mat lagt á kelfingarhraða. Rýrnun Breiðamerkurjökuls ræður miklu um landlyftingarhraða í nágrenni hans, rýrnun hans er metin eftir afkomumælingum og mismuni yfirborðskorta frá einum tíma til annars. Miklar breytingar eru nú að verða á jöklinum og landinu framan hans, árfarvegum og lónum á svæðinu milli Breiðárlóns og Jökulsárlóns.

Tilgangur og markmið:

 

Tilgangur þessarar rannsóknar er margþættur, hér eru nefnd þrjú atriði:

1. Leggja mat á  afrennsli frá Breiðamerkurjökli til Jökulsárlóns.

2. Meta afkomu Breiðamerkurjökuls ár frá ári og yfir lengri tímabil frá lokum litlu ísaldar.  Þessi gögn nýtast einnig til gerðar samtengdra reiknilíkana um veður, afkomu og hreyfingu jökla.  Slík samtengd líkön má nota til að skoða jöklunarsögu Breiðamerkurjökuls og einnig til að spá fyrir um þróun hans í næstu framtíð.   Allt þetta nýtist líka þeim sem stunda mælingar á viðbrögðum skorpu við breytingum í jökulfargi og þróun reiknilíkana um landlyftingu.

3. Meta á eins nákvæmlega og kostur er magn íss sem kelfir í lónið og breytileika þess. Gagnaöflun vegna rannsókna á eðli kelfingar íss og þróunar reiknilíkana sem lýsa henni. 

4. Fylgjast með þeim öru breytingum sem nú eru á jökli, landi, farvegum og nýjum lónum á svæðinu milli Breiðamerkurlóns og Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi.