Almenn verkefni 2021

Heiti verkefnis : 

Tæring á hægryðgandi stáli við íslenskar aðstæður

Verkefnastjóri : 

 

Stutt lýsing á verkefninu:

 

Rannsókn á tæringu á hægryðgandi stáli á Íslandi hófst árið 2017 með styrk frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Sett voru upp tæringarsýni það ár á 9 stöðum allt í kringum landið og á hálendinu og á tveimur stöðum árið 2018, alls 120 sýni. Kanna á notkunarmöguleika hægryðgandi stáls í samgöngumannvirki hérlendis og athuga sérstaklega hagkvæmni fyrir brúargerð. Sýni hafa verið tekin niður eftir 1, 3 ár og tæring þeirra mæld. Efir er svo að taka niður restina af sýnunum eftir 5 og 10 ár og mæla þau, þ.e. á árunum 2024 og 2029.

Nú er sótt um styrk til að mæla sýni sem tekin voru niður í vetur og einnig að útbúa hönnunarleiðbeiningar fyrir hægryðgandi stál

Tilgangur og markmið:

 

Tilgangur verkefnisins er að afla áreiðanlegra heimilda (tölulegra gagna) um tæringar og veðrunarþol hægryðgandi stáls við íslenskar aðstæður með tilliti til notkunar í brúargerð.