Almenn verkefni 2020
Almenn verkefni 2020
Heiti verkefnis : | Leiðbeiningar við notkun valtara með þjöppumæli og staðsetningarbúnað, í vegagerð. | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
Útbúa verklag og aðferðir m.a. til að: - Leiðbeina hönnun, eftirliti og valtarastjóra. - Stilla af / kvarða þjöppumælir. - Skilgreina, ekki bara efsta lag, heldur öll lög/lagþykktir í hönnun og í tækjum. - Sýna fram á að kröfur til þjöppunar séu uppfylltar. - Gildi mælinga séu sjáanlegar og sýnanlegar. Einnig í rauntíma. - Skila niðurstöðum á samræmdu formi. - Gátlisti
| ||
Tilgangur og markmið: | ||
Markmið verkefnis er að vera varða á á leiðinni til fullþjappaðra "kyrra" vega á Íslandi og þannig stuðla að langlífari vegum, slitlögum og fleiri mannvirkjum. Stefnum m.a. að því að skoða og svara eftirfarandi spurningum: Er hægt að uppfylla kröfur til þjöppunar í öllum lögum ? Er hægt að koma í veg fyrir yfirlöppun/ofþjöppun ? Þarf að skilgreina fleiri lög en efsta lagið í undirbyggingu? Þarf að hanna hvert lag í undirbyggingu, eða t.d. efstu tvö lögin ? Er eða ætti að vera eftirgjöf í kröfum til undirbyggingar, því neðar sem í hana er komið ? Getum við skoðað þjöppun í rauntíma, og hugsanlega gripið inn í ef þarf ?
|