Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2021
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar var haldin í 20. sinn föstudaginn 29. október og fór fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut. Ráðstefnunni er ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess rannsókna- og þróunarstarfs, sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Á ráðstefnunni kenndi margra grasa. Haldnir voru 15 fyrirlestrar um rannsóknarverkefni og kynnt 13 veggspjöld. Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, hóf ráðstefnuna með erindi sem bar heitið „Náttúran og pólitíkin“.
Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki einvörðungu er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.
Ráðstefnan var afar vel sótt en hátt í 300 manns voru skráðir. Um breiðan hóp er að ræða sem samanstendur af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsmönnum ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktökum og almennu áhugafólki um samgöngur og rannsóknir.
Ráðstefnustjóri var G. Pétur Matthíasson.
Heiti og flytjendur erindanna |
---|
Setning, Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar |
Náttúran og pólitíkin, Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, fyrrv. alþingismaður og rithöfundur. - Ágrip |
Malarslitlög - ekki bara drulla, Hafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin - Ágrip |
Tæring málma í andrúmslofti á Íslandi, Vigdís Bjarnadóttir og Baldvin Einarsson, Efla hf. - Ágrip |
Endurskoðun jarðtæknistaðalsins Eurocode 7, Þorgeir Helgason, Verkís hf., Davíð R. Hauksson, VSÓ Ráðgjöf ehf. og Þorri Björn Gunnarsson, Mannvit hf. - Ágrip |
Slitþolin hástyrkleikasteypa 50 mm á brýr – þróun og blöndun, Helgi S. Ólafsson, Vegagerðin - Ágrip |
Stauraundirstöður fyrir brýr, Andri Gunnarsson, Efla hf. - Ágrip |
Gagnvirkar hraðahindranir, Katrín Halldórsdóttir, Vegagerðin - Ágrip |
Áhrif örflæðis í samgöngulíkani, Albert Skarphéðinsson, Mannvit hf. - Ágrip |
Borgarskipulag og ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu, Harpa Stefánsdóttir, NMBU - Ágrip |
Mælingar á færslu óstöðugra fláa í rauntíma og langtíma – Siglufjarðarvegur, |
Notkun gagna veggreinis í umferðaröryggisstjórnun, Þorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin - Ágrip |
Farsímagögn í umferðarlíkan, Grétar Mar Hreggviðsson, VSÓ Ráðgjöf ehf. - Ágrip |
Endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum, Steinunn Garðarsdóttir, LBHÍ - Ágrip |
Grænar raforkulausnir fyrir vita byggðar á efnarafölum, Atli Már Ágústsson, Efla hf. - Ágrip |
Sjálfbærnimat íslenskra vegaframkvæmda – tilviksrannsókn á nýjum Suðurlandsvegi, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Mannvit hf. - Ágrip |
Kortlagning á neðansjávarskriðum í Seyðisfirði og Norðfirði, Ögmundur Erlendsson og Anett Blischke, ÍSOR - Ágrip |
Veggspjöld til sýnis á 20. Rannsóknaráðstefnu.
Veggspjöld á 20. Rannsóknaráðstefnu |
---|
Burðarþolspróf á brú yfir Steinavötn í Suðursveit, Atli Geir Ragnarsson, Verksýn ehf., Einar Óskarsson, Aron Bjarnason, Guðmundur Valur Guðmundsson og Ólafur Sveinn Haraldsson, Vegagerðin |
Evrópustaðlar og Efnisgæðarit Vegagerðarinnar, Pétur Pétursson, Vegagerðin |
Gerð vindhviðu kortaþekju fyrir helstu þjóðvegi, Einar Sveinbjörnsson og Sveinn Gauti Einarsson, Veðurvaktin ehf. |
Grímsvötn: vatnsgeymir, jökulhlaup, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson og Eyjólfur Magnússon, Háskóli Íslands |
Kerfi sjávarborðsmælinga, G. Orri Gröndal og Sigurður Sigurðarson, Vegagerðin |
Samanburður á mælingum á sjávarborði og líkanreikningum með Delft3D-FM og greining áhrifaþátta strandflóða 2020, Kévin Dubois, Angel Ruiz-Angulo, Halldór Björnsson, Sigurður Sigurðarson and G. Orri Gröndal, Veðurstofan og Vegagerðin |
Samanburður á mælingum á sjávarborði og líkanreikningum með Delft3D-FM og greining áhrifaþátta strandflóða 2021, Kévin Dubois, Angel Ruiz-Angulo, Halldór Björnsson, Sigurður Sigurðarson and G. Orri Gröndal, Veðurstofan og Vegagerðin |
Samsetning og uppruni svifryks í Hvalfjarðargöngum, Gísli Guðmundsson, Háskólinn í Reykjavík |
Sandflutningar við Suðurströndina - Vík í Mýrdal, Sigurður Sigurðarson, Kjartan Elíasson, Ingunn E. Jónsdóttir, Bryndís Tryggvadóttir, Pétur I. Sveinbjörnsson, G. Orri Gröndal, Sunna Viðarsdóttir og Fannar Gíslason, Vegagerðin |
Structural Analysis and modelling of a reinforced concrete bridge based on full scale data, Þórunn Vala Jónasdóttir og Jónas Þór Snæbjörnsson, Háskólinn í Reykjavík |
Sveigjanleg og aðlögunarhæf skipulagsgerð fyrir hafnir, Majid Eskafi, Guðmundur F. Úlfarsson, Gunnar Stefánsson, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, Ali Dastgheib, Poonam Taneja, Háskóli Íslands |
Tarva - Mat á aðgerðum sem stuðla að bættu umferðaröryggi, Arna Kristjánsdóttir, Berglind Hallgrímsdóttir og Ragnar Gauti Hauksson, Efla hf. |
Þróun á endafrágangi brúa til að lágmarka viðhald vega við brúarenda, Magnús Arason, Baldvin Einarsson og Ingvar Hjartarson, Efla hf. |