• Ráðstefnugestir í kaffihléi

Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar 2007

Yfir 150 manns sóttu 6. ráðstefnu um rannsóknir Vegagerðarinnar, sem haldin var á Hilton Hotel Nordica þann 2. nóvember síðastliðinn.

Á ráðstefnunni voru kynnt 20 verkefni sem hafa fengið styrk úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar á þessu og síðasta ári. Það er þó aðeins hluti af þeim fjölda verkefna sem fá styrk, en á hverju ári undanfarið hefur ríflega 100 milljónum króna verið veitt í yfir 100 verkefni. Umsóknir hafa þó alltaf verið mun fleiri og oft þurft að hafna góðum verkefnum.

Í vegalögum er bundið að 1% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar skuli renna í rannsókna og með nýjum vegalögum sem taka gildi um næstu áramót er þetta hækkað í 1,5%. Þetta mun hafa áhrif á rannsóknarsjóðinn frá og með árinu 2009, þannig að þá verður hægt að sinna fleiri umsóknum en áður.

Skýrslur og niðurstöður rannsókna eru birtar á vefnum jafnóðum og þær liggja fyrir hér:
Upplýsingar og útgáfa => Rannsóknarskýrslur.

Nú er hægt að nálgast ágrip af erindum á ráðstefnunni og einnig hægt að skoða glærur sem fyrirlesarar notuðu, sjá hér fyrir neðan.

Ráðstefnugestir 2007 Ráðstefnugestir 2007




Dagskrá ráðstefnunnar með erindum og ágripum:

 
Setning (Þórir Ingason, Vegagerðin)
 
Hönnun hljóðvarna í þéttbýli: viðhorf til sjónrænnar upplifunar (Kristín Þorleifsdóttir, Hornsteinar arkitektar) ágrip
Steinsteypunefnd í 40 ár (Hákon Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Rb) ágrip
Grænt asfalt (Sigursteinn Hjartarson, Vegagerðin) ágrip
Kvörðun frostdýptarmæla út frá falllóðsmælingum á vegum (Skúli Þórðarson, Vegsýn og Nicolai Jónasson, Vegagerðinni) ágrip
Skráning vettvangsupplýsinga í handtölvu (Haukur Garðarsson, VGK-Hönnun og Hersir Gíslason, Vegagerðinni) ágrip
 
EuroRAP og umhverfi vega (Ólafur Kr. Guðmundsson, FÍB) ágrip
Útafakstur og bílveltur (Sævar Helgi Lárusson, Rannsóknanefnd umferðarslysa) ágrip
Óhappatíðni í beygjum og langhalla (Haraldur Sigþórsson, Línuhönnun og Einar Pálsson, Vegagerðinni) ágrip
Ferilgreining, þungaálag og þungaskattur (Björn Ólafsson, Vegagerðin) ágrip
Vettvangsskráning (Ásbjörn Ólafsson, Vegagerðin) ágrip
Aldraðir í umferðinni (Dagbjört H. Kristinsdóttir, Slysavarnafélagið Landsbjörg) ágrip
 
Svifryksmengun í Reykjavík (Þorsteinn Jóhannsson, Umhverfisstofnun) ágrip
Tengsl umferðar við styrk svifryksmengunar (Þröstur Þorsteinsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands) ágrip
Landris og eldvirkni vegna rýrnunar Vatnajökuls: Áhrif á hönnun mannvirkja og vegakerfis (Freysteinn Sigmundsson, HÍ) ágrip
Volcanogenic hazards and resultant risks to road systems and infrastructure: preliminary assessments at Snæfellsjökull (Kate Smith, HÍ) ágrip
Könnun á hegðun Skaftárhlaupa með mælingum á hita og vatnsborði í Skaftárkötlum (Þorsteinn Þorsteinsson, Orkustofnun) ágrip
Tourists visiting Þórsmörk lack knowledge and awareness of Katla and jökulhlaup hazard. (Deanne Bird, Guðrún Gísladóttir og Dale Dominey-Howes, Háskóla Íslands) ágrip
Leiðbeiningar Vg fyrir skipulagshöfunda (Smári Johnsen, VSÓ) ágrip
Ferðamennska við Laka (Anna Dóra Sæþórsdóttir, HÍ) ágrip
Áhættu- og áfallaþolsgreining vegakerfisins í Reykjavík (Böðvar Tómasson, Línuhönnun) ágrip
Mannvirki og loftslagsbreytingar (Þorsteinn I Sigfússon, Nýsköpunarmiðstöð Íslands) ágrip


Veggspjöld:

Sjálfvirk greining á akstursvegalengd og akstursleiðum vinnutækja - Veggspjald

Landsnet hröðunarmæla og mæld áhrif jarðskj. á brýr

Jöklabreytingar í Austur-Skaftafellssýslu - fyrr, nú og á komandi árum

Rekstur vatnshæðarmæla Vatnamælingar Orkustofnunar

Snjómælir SM4