Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-176
Útgáfudagur:03/14/2022
Útgáfa:12.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
2.1 Stikur

Stikur eru vegstikur, snjóstikur og endurskinsmerki á leiðurum.

Skilgreining:
Viðhald vegstika eru eftirfarandi aðgerðir:
  • Endurnýjun vegstika og endurskinsmerkjum á vegriðum
  • Viðhald vegstika og endurskinsmerkjum á vegriðum
  • Þvottur vegstika og endurskinsmerkjum á vegriðum

Úr reglugerð um umferðarmerki:

K01.11 Vegstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Í jarðgöngum við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli og við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi.
K01.11 Vegstikur
K01.11 Vegstikur í jarðgöngum
K01.21 Snjóstikur eru notaðar til að afmarka vegarbrún á snjóþungum vegum. Glitmerki skulu sýna hvítt endurskin. Nota skal eitt merki við hægri brún akbrautar miðað við akstursstefnu. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvö með a.m.k. 0,3 m bili á milli. Við vinstri brún akbrautar á vegi með umferð í báðar áttir skal nota tvö aðskilin merki. Ef stikan er lengri en 1,3 m er heimilt að hafa merkin tvisvar sinnum tvö, með a.m.k. 0,3 m bili á milli para. Glitmerki skulu skásett þannig að þau vísi að vegi
K01.21 Snjóstikur
Drög að reglugerðarákvæði á vegum með umferð í eina átt


Aðgerðalýsing:
Stikur skal setja upp á óupplýstum vegum samkvæmt eftirfarandi. Gert er ráð fyrir snjóstikum á öllum vegum sem liggja í 350 m hæð eða meira.
Vegtegund
Tíðni
Fjöldi stika
á km
Stofnvegir
2 x 50
40
Tengivegir ÁDU > 100
2 x 50
40
Tengivegir ÁDU < 100
1 x 50
20
Héraðsvegir og Stofnvegir á hálendi
1 x 100
10
Landsvegir
1x 100
10
Tafla 1. Reglur um vegstikun

2 x 50 er báðum megin og á 50 metra fresti
1 x 100 er öðrum megin á og á 100 metra fresti

Stikur skulu vera gular og vel sýnilegar a.m.k. í 500 m fjarlægð

Heimilt er að setja upp fleiri stikur á varasömum stöðum til að bæta öryggi vegfaranda t.d. þar sem skyggni er slæmt að vetrarlagi, við ræsi og í beygjum. Þá má stika allt að helmingi þéttar en staðall gerir ráð fyrir

Á vegum þar sem annar kantur er stikaður og skipt er um kant við stikun skal stika á báðum köntum á a.m.k. 300 m kafla. Þar sem vegur er í meira en 200 m hæð eða á snjóþungum svæðum skal það metið hverju sinni hvar settar eru snjóstikur og hve þétt þær skulu standa.

Á upplýstum vegum skulu kantar stikaðir, þeim megin sem ljósastaurar eru ekki, ef skyggni og aðstæður gefa sérstakt tilefni til. Ljósastaura má merkja með endurskinsmerkjum á sama hátt og stikur.

Á snjóþungum svæðum og þar sem reglur kveða á um stikun beggja vegna vegar er ekki skylt að halda við stikum á báðum köntum að vetri til nema ÁDU sé meiri en 1000 bílar. Heppilegt getur verið að taka upp snjóstikur að vori og setja kantstikur í staðinn.

Stikur og endurskinsmerki á leiðurum skal hreinsa eftir þörfum, en miða skal við að endurskin sé minnst um 60-70 % af því sem það best getur verið.

Endurnýjun og hreinsun vegstika miðast við töflu 2 og 3
Þjónustuflokkur í almennri þjónustu
Árleg
endurnýjun
Árleg
hreinsun
1
0,5
4
2
0,35
2
3
0,25
1
4
0,2
0
Tafla 2. Endurnýjun og hreinsun vegstika.
Vetrarþjónustu-
flokkur
Margfeldi
1
1,2
2
1,1
3
1,05
4
1
Tafla 3. Margföldunarstuðlar á tíðni endurnýjunar og hreinsun stika vegna vetrarþjónustuflokks.
Staðsetning stika:
Þar sem stikur eru báðum megin vegar skulu þær standa gegnt hvor annarri.
Stikur skal staðsetja efst í fláa utan við vegaxlir.
Stikur skal staðsetja þannig að þær myndi línu samsíða vegi.

Lengd stika:
Hefðbundnar stikur eru 90 sm en einnig er heimilt að nota 120 sm stikur við sérstakar aðstæður.

Nota má snjóstikur K01.21 í stað venjulegra stika.
Almennar kröfur til vegstika
Vegstikur.doc

Álagsþol stika og samanburður við drög að Evrópustaðli - Skýrsla útgefin af ITÍ í september 2005
Álagsþol stika og evrópustaðall.pdf