Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-019
Útgáfudagur:12/18/2006
Útgáfa:1.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
1 Almennar reglur um bannmerki (B)

Reglugerð Dómsmálaráðuneytis:
Bannmerkjum er ætlað að banna eða mæla fyrir um umferð. Bannmerki eru flest hringlaga með rauðum jaðri og gulum miðfleti. Á hinum gula fleti skal merkið skýrt nánar með táknmynd eða svörtu letri.

Vinnureglur um notkun:
Stærð bannmerkja skal vera sem hér segir:
Gerð
Þvermál
(mm)
Breidd jaðars
(mm)
D
a
Lítil
400
40
Venjuleg
600
60
Stærri
800
80

Bannmerki ber að setja sem næst þeim stað sem merkið á við. Merkin B30.11 , B30.12 og B30.21 má þó setja í allt að 50 m fjarlægð frá vegamótum.
Þegar við á skal merkja lengd eða fjarlægð í hættusvæði á undirmerki J01.11 eða J02.11 .

Á þjóðvegum utan þéttbýlis með árdagsumferð (ÁDU) yfir 500 bílar/dag skal nota stærri gerð merkja.

Á þjóðvegum innan þéttbýlis þar sem leyfður umferðarhraði er 60 km/klst eða hærri skal nota nota stærri gerð merkja.

Minni gerð merkja skal eingöngu nota þar sem ekki er hægt að nota venjuleg merki vegna þrengsla.

Í þéttbýli má þvermál merkjanna B21.11 og B24.11 vera 250 mm.

Ef vísa þarf á aðrar leiðir eða ef akstursleið endar þar sem bannsvæði byrjar má gera það með viðbótarmerkjum á upplýsingatöflu.