Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-763
Útgáfudagur:11/22/2011
Útgáfa:2.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
J J39.11 Einbreitt slitlag

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta er notað með A99.11 þar sem bundið slitlag er 5 m breitt eða mjórra til að vara ökumenn við að þeir þurfi að víkja út á malaröxl þegar mæst er.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Merkið skal setja upp um 200 metrum áður en komið er að einbreiðu slitlagi.