Opnun tilboða
Vetrarþjónusta 2023-2026, Vatnaleið og Snæfellsnesvegur
Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Vatnaleið og Snæfellsnesvegur.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 27.500 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Balatá ehf., Ólafsvík | 156.904.413 | 111,0 | 72.465 |
Áætlaður verktakakostnaður | 141.292.500 | 100,0 | 56.853 |
BB og synir ehf., Stykkishólmi | 118.620.000 | 84,0 | 34.181 |
Gussi ehf., Stykkishólmi | 84.439.020 | 59,8 | 0 |