Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2021-2024, Höfuðborgarsvæðið (EES)

29.6.2021

Opnun tilboða 29. júní 2021. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum á Höfuðborgarsvæðinu.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn. 

Heildarlengd vegakafla er 109,7 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 100.000 km. á ári.

Verklok eru í apríl 2024.

Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 3 ár.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Íslenska gámafélagið ehf., Reykjavík 675.900.000 242,9 75.780
Malbikunarstöðin Höfði hf., Reykjavík 633.900.000 227,8 33.780
Óskatak ehf., Kópavogi 600.120.000 215,7 0
Áætlaður verktakakostnaður 278.225.805 100,0 -321.894