Opnun tilboða

Vestfjarðavegur (60) Um Gufudalssveit, Þórisstaðir – Hallsteinsnes - Eftirlit og ráðgjöf – (EES)

19.7.2022

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit,
Þórisstaðir - Hallsteinsnes. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 10,4 km kafla og 0,2 km kafla um
Djúpadalsveg. Vegurinn er að mestu byggður í nýju vegsvæði en tengist Vestfjarðavegi í annan endann og nýjum
Djúpadalsvegi sem er í byggingu í hinn endann.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests:

Verkís hf., Reykjavík

Föstudaginn 22. júlí 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð bjóðenda.