Vatnsnesvegur (711) um Vesturhópshólaá
Opnun tilboða 1. febrúar 2022. Bygging 17 m langrar brúar yfir Vesturhópshólaá á Vatnsnesvegi, nýbyggingu vegar á um 1,0 km kafla og endurbyggingu á um 1,2 km löngum kafla milli Vesturhópshóla og Þorfinnsstaða. Einnig er inni í verkinu bygging heimreiða og tenginga.
Áætlaðar magntölur:
- Fyllingarefni úr námum 17.090 m3
- Fláafleygar úr skeringum 4.680 m3
- Ræsalögn 121 m
- Styrktarlag 15.400 m3
- Burðarlag 3.500 m3
- Malarslitlag 250 m3
- Tvöföld klæðing 13.450 m2
- Vegrið 280 m
- Frágangur fláa 30.220 m2
- Frágangur á námum 14.500 m2
Verkhluti 2 – Brú á Vesturhópshólaá:
- Gröftur 70 m3
- Steyptir staurar, skurður 42 stk
- Mótafletir 905,1 m2
- Steypustyrktarjárn 39,6 tonn
- Spennt járnalögn 4,5 tonn
- Steypa 323,7 m3
- Vegrið á brú 38 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. ágúst 2022.
Engin tilboð bárust.