Opnun tilboða

Þorlákshöfn – Svartaskerbryggja, endurbygging stálþils 2022

5.4.2022

Opnun tilboða 5. apríl 2022. Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskaði eftir tilboðum í verkið „Þorlákshöfn – Svartaskerbryggja, endurbygging stálþils 2022“. 

Helstu verkþættir eru:

·         Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.

·         Reka niður 146 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800 og eina einfalda sömu gerðar

·         Steypa 62 akkerisplötur og uppsetning staga.

·         Steypa um 230 m langan kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 2022.

 

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Borgarverk ehf., Borgarnesi 325.735.370 115,1 31.485
Hagtak hf.,. Hafnarfirði 294.250.000 103,9 0
Áætlaður verktakakostnaður 283.083.600 100,0 -11.166