Þjórsárdalsvegur (32), Hallslaut - Fossá
Opnun tilboða 15. mars 2022. Styrking og klæðingu á Þjórsárdalsveg (32-03), frá Hallslaut að Fossá.
Um er að ræða endurbyggingu Þjórsárdalsvegar (32-02), frá Hallslaut í vestri að Fossá í austri. Verkið felst í fræsingu á núverandi klæðningu, styrkingu og klæða aftur með bundnu slitlagi. Vegkaflinn sem um ræðir er 2,6 km að lengd og að jafnaði 6,5 m breiður.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 320 m3
- Styrktarlag 0/90 1.120 m3
- Burðarlag 0/22 3.000 m3
- Tvöföld klæðing 14.500 m2
- Frágangur fláa 11.450 m2
Verki skal að fullu lokið 26. ágúst 2022.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 64.274.000 | 123,6 | 8.444 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 59.618.300 | 114,7 | 3.788 |
Þjótandi ehf., Hellu | 55.992.000 | 107,7 | 162 |
Steypudrangur ehf., Vík | 55.829.960 | 107,4 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 52.000.000 | 100,0 | -3.830 |