Opnun tilboða

Þverárfjallsvegur (73) í Refasveit og Skagastrandarvegur (74) um Laxá, eftirlit (EES)

24.8.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit með  í byggingu nýs Þverárfjallsvegar í Refasveit frá Hringvegi norðan Blönduóss að núverandi Þverárfjallsvegi, um 8,5 km að lengd og nýs Skagastrandarvegar frá nýjum Þverárfjallsvegi að Skagastrandarvegi norðan Höskuldsstaða, um 3,3 km að lengd. Á Skagastrandarveg skal byggja nýja 106 m langa brú á Laxá í Refasveit. Brúin er í þremur höfum, steinsteypt og eftirspennt. Einnig skal byggja nýjar tengingar og heimreiðar, samtals um 4,5 km að lengd.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 1. nóvember 2023.

Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 17. ágúst 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.


Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Verkís hf., Reykjavík 50.100.000 116,0 7.026
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík 49.941.000 115,6 6.867
Áætlaður verktakakostnaður 43.200.000 100,0 126
Mannvit hf., Kópavogi 43.073.600 99,7 0