Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá (EES)
Opnun tilboð 24. ágúst 2021. Bygging brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar
beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg (3312) og við Auðsholtsveg (340-01) og gerð
reiðstígs. Nýja Brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m. Helstu magntölur eru:
Vegagerð:
- Fyllingar 9.000 m3
- Ónothæfu efni jafnað á losunarstað 7.000 m3
- Styrktarlag 5.000 m3
- Burðarlag 1.850 m3
- Tvöföld klæðing 8.400 m2-
- Bitavegrið, uppsetning 580 m
Brúargerð
- Grjótvörn 1.600 m3
- Gröftur 9.400 m3
- Fylling við steypt mannvirki 9.400 m3
- Bergskering 200 m3
- Sponsþil 130 m
- Mótafletir 3.800 m2
- Steypustyrktarjárn 270 tonn
- Spennt járnalögn 34 tonn
- Steypa 2.300 m3
- Brúarvegrið 290 m
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 30. september 2022.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
ÞG verktakar, Reykjavík | 1.306.954.815 | 135,0 | 515.645 |
Landstólpi ehf., Gunnbjarnarholti | 969.490.851 | 100,1 | 178.181 |
Áætlaður verktakakostnaður | 968.458.812 | 100,0 | 177.149 |
PK Verk ehf. og PK Byggingar ehf., Hafnarfirði | 883.467.750 | 91,2 | 92.158 |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 791.310.188 | 81,7 | 0 |