Opnun tilboða

Sauðárkrókur, endurbygging Efrigarðs 2022

25.11.2022

Opnun tilboða 25. október 2022. .Sveitarfélagið Skagafjörður óskaði eftir tilboðum í endurbyggingu Efrigarðs í Sauðárkrókshöfn.
Helstu magntölur og verkþættir eru:

• Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
• Þilskurður fyrir stálþilsrekstur um 90 m.
• Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
• Jarðvinna, fylling og þjöppun.
• Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum.
• Steypa um 90 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Hagtak hf., Hafnarfirði 322.500.000 199,6 0
Áætlaður verktakakostnaður 161.562.750 100,0 -160.937