Opnun tilboða

Reykjanesbraut (41), Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun. Eftirlit og ráðgjöf

3.5.2022

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf vegna endurbyggingar og breikkunar
Reykjanesbrautar (41) á um 5,6 km kafla frá Krýsuvíkurvegi að Hvassahrauni. Verkið felst í tvöföldun
vegarins, gerð mislægra vegamóta og vegtenginga ásamt undirgöngum fyrir gangandi og hjólandi umferð.
Innifalið í verkinu er m.a. færsla og endurnýjun lagna, frágangur veglýsingar og gerð vigtarplans.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð á fyrri hluta árs 2025. Val bjóðanda fer fram á grundvelli
hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi
bjóðanda og verðtilboð.
Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests:

Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Mannvit, Kópavogi
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík

Þriðjudaginn 10. maí 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð bjóðenda..