Opnun tilboða

Reykjanesbraut (41), Kaldárselsvegur - Krýsuvíkurvegur - Eftirlit (EES útboð)

27.3.2019

Fyrri opnunarfundur tilboða í eftirlit fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnafirði milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar. Auk þess eru innifalið í útboðinu eftirlit með gerð nýrrar vegbrúar yfir Strandgötu, gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún ásamt gerð umfangsmikilla hljóðvarna við Reykjanesbraut eins og verkinu er lýst í útboðsgögnum verkframkvæmdar. Heildarlengd kaflans er um 3,2 km. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og veitufyrirtækja.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Lesið var upp hverjir skiluðu inn tilboðum en á síðari opnunarfundi, sem verður þriðjudaginn 2. apríl 2019 kl. 14:15, verða lesin upp stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð.

Bjóðendur:

  • Strendingur ehf., Hafnarfirði
    • VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík
    • Mannvit, Reykjavík
    • Verkís hf., Reykjavík
      • Hnit, verkfræðistofa, Reykjavík