Opnun tilboða

Ólafsvík – Norðurtangi, þekja og lagnir 2022

30.3.2022

Opnun tilboða 29. mars 2022. Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskaði eftir tilboðum í verkið „Ólafsvík – Norðurtangi,  þekja og lagnir 2022“. 

Helstu verkþættir eru:

·         Steypa upp 1stk. rafbúnaðarhús og 2 stk. stöpla undir ljósamöstur

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn

·         Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum

·         Leggja fráveitulögn og koma fyrir niðurföllum

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu.  

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.840 m²  

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2022.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Áætlaður verktakakostnaður 123.841.500 100,0 32.663
Þ.G. Þorkelsson ehf., Grundarfirði 96.589.620 78,0 5.411
Almenna umhverfisþjónustan ehf., Grundarfirði 91.178.780 73,6 0