Opnun tilboða

Strandavegur (643), Djúpvegur - Geirmundarstaðavegur

19.6.2012

Opnun tilboða 19. júní 2012. Endur- og nýlögn Strandavegar (643) frá Djúpvegi að Geirmundarstaðavegi í Steingrímsfjarðarbotni. Lengd Strandavegar á útboðskaflanum er 2,8 km. Aðrir vegir eru 0,4 km langir. Framkvæmdin er í sveitarfélaginu Strandabyggð.

Helstu magntölur eru:

Fylling og fláafleygar 94.750 m3
Rof- og slettuvarnir 9.800 m3
Skeringar í vegstæði 63.800 m3
 - þar af bergskeringar 16.900 m3
Bergskeringar í námum 12.700 m3
Neðra burðarlag 11.600 m3
Efra burðarlag 4.700 m3
Tvöföld klæðing 21.000 m2

Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2013.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Áætlaður verktakakostnaður 194.600.000 100,0 46.894
Þróttur ehf., Akranesi 190.662.060 98,0 42.956
Nesey ehf., Selfossi 175.000.000 89,9 27.294
Skagfirskir verktakar ehf., Sauðárkróki 171.957.000 88,4 24.251
Borgarverk ehf., Borgarnesi 166.520.000 85,6 18.814
Verktakafélagið Glaumur ehf., Garðabæ 147.706.200 75,9 0