Opnun tilboða

Arnarnesvegur (411), Reykjanesbraut – Fífuhvammsvegur, hönnun

24.6.2008

Article

Vegagerðin óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun Arnarnesvegar (411), frá mislægum gatnamótum við Reykjanesbraut að gatnamótum Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar, um 1,8 km. Einnig skal for- og verkhanna fern gatnamót ásamt fimm undirgöngum og göngustígum. Forhanna skal staðsetningu á einni göngubrú.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkhönnun og skilamati skal lokið fyrir 22. desember 2008.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með þriðjudeginum 13. maí 2008. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.

Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 18. júní 2008, og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 24. júní 2008 kl. 14:15 þar sem birtar verða einkunnir bjóðenda úr hæfnismati og verðtilboð opnuð.

Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Opnun tilboða 24. júní 2008.

Bjóðendur* Hæfnimat Tilboð kr.
Áætlaður verktakakostnaður 55.000.000
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík 67 60.725.561
Fjölhönnun ehf., Reykjavík 62 48.539.287
Hnit hf., Reykjavík 68 28.999.730
Línuhönnun hf., Reykjavík 66 39.682.075
Mannvit, Reykjavík 68 41.996.500
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Reykjavík 68 49.789.198


*stafrófsröð