Opnun tilboða
Vetrarþjónusta Norðaustursvæði 2007-2010, Hringvegur (1), Höfn - Öræfi
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreiðum, ásamt upplýsingagjöf, á Hringvegi (1) og Hafnarvegi (99), frá Höfn í Hornarfirði að sýslumörkum Vestur-Skaftafellssýslu á Skeiðarársandi.
Helstu magntölur, á ári, eru:
· Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum 230 klst.
· Snjómokstur og hálkuvörn með vörubílum 9.200 km
Verktími er frá 15. október 2007 til og með 15. maí 2010.
Tilboð opnuð 14.08.07.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Rósaberg ehf. | 6.655.000 | 136,0 | 1.603 |
Ólafur Halldórsson | 5.052.500 | 103,3 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 4.892.000 | 100,0 | -161 |
Ólafur Halldórsson skilaði einnig inn frávikstilboði.