Norðausturvegur (85) um Brekknaheiði, Langanesvegur - Vatnadalur, könnun á matsskyldu og hönnun
Vegagerðin óskaði eftir tilboði í könnun á matsskyldu ásamt for- og verkhönnun fyrir nýframkvæmd Norðausturvegar (85) um Brekknaheiði, frá Langanesvegi að Vatnadal. Kaflinn er um 8 km langur og nær frá tengingu við Langanesveg sunnan Þórshafnar að núverandi slitlagsenda í Vatnadal.
Val bjóðanda fór fram á grundvelli hæfnismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 23. ágúst 2022, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu. Þriðjudaginn 1. september 2022 voru verðtilboð bjóðenda sem uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat opnuð.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Verkís hf., Reykjavík | 45.850.318 | 223,1 | 23.648 |
VBV ehf., Reykjavík | 25.803.572 | 125,5 | 3.602 |
Mannvit, Kópavogi | 22.201.900 | 108,0 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 20.553000 | 100 | -1.649 |