Opnun tilboða
Leiðigarður og bakkavörn, Jökulsá í Lóni
Tilboð opnuð 3. mars 2020. Leiðigarður og bakkavörn við Jökulsá í Lóni
Um er að ræða leiðigarð við landstöpul vestan megin brúar yfir Jökulsá í Lóni á Hringvegi á kafla 1-x4 og bakkavörn um 2,2 km ofar í farveginum austan megin.
Helstu magntölur eru (magntölur: leiðigarður + bakkavörn):
Grjót 3.532 m3 (2.632 + 900)
Síulag 1.120 m3
Uppgröftur 2.500 m3
Fylling 6.088 m3 (4.988 + 1.100)
Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
JG vélar ehf., Reykjavík | 39.925.000 | 132,2 | 14.393 |
Þ.S. Verkatakar ehf., Egilsstöðum | 34.388.659 | 113,9 | 8.856 |
Bjartur ehf., Hólmavík | 30.526.600 | 101,1 | 4.994 |
Áætlaður verktakakostnaður | 30.195.600 | 100,0 | 4.663 |
SG Vélar ehf., Djúpavogi | 29.360.026 | 97,2 | 3.828 |
Rósaberg ehf., Hafnarfirði | 25.532.400 | 84,6 | 0 |