Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, eftirlit og ráðgjöf (EES)
Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegar (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, Verkið innifelur byggingu brúa á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegkafla beggja vegna. Að auki er hluti af verkinu gerð áningarstaða við báðar brýrnar.
Val bjóðanda fór fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 1. nóvember 2022.
Eftir lok tilboðsfrests, föstudaginn 25. júní 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í
útboðinu. Miðvikudaginn 30. júní 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur
uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Efla hf., Reykjavík | 49.476.000 | 133,7 | 5.726 |
Hnit, verkfræðistofa hf., Reykjavík | 46.166.750 | 124,8 | 2.417 |
Mannvit hf., Kópavogi | 43.750.000 | 118,2 | 0 |
Áætlaður ráðgjafakostnaður | 37.000.000 | 100,0 | -6.750 |