Opnun tilboða

Hringvegur (1) um Hornafjörð (EES)

6.7.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í framkvæmd og fjármögnun verksins „Hringvegur (1) um Hornafjörð“. Framkvæmdin er í sveitarfélagi Hornafjarðar, Austur-Skaftafellssýslu. Verkið felst í breyttri legu Hringvegar (1) um Hornafjörð og kemur til með að fækka einbreiðum brúm á Hringvegi (1) um þrjár og stytta hann um 12 km. Verktaki skal, auk byggingu mannvirkja, fjármagna verkið að hluta til lengri tíma (20-30 ár). Verktími framkvæmdarinnar er áætlaður allt að þremur árum.

Eftirtaldir aðilar skiluðu inn umsókn um þátttöku í innkaupaferlinu.

   Ístak hf., Mosfellsbæ

   Þróun og ráðgjöf ehf., ÍAV hf. og Arctica finance hf. fyrir hönd óstofnaðs félags

   ÞG verk, Reykjavík

   Borgarverk ehf., Borgarnesi