Opnun tilboða

Hringvegur (1), Biskupstungnabraut- Hveragerði 1. áfangi - Eftirlit

2.1.2019

Tilboð opnuð 2. janúar 2019. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit fyrir fyrsta hluta breikkun Hringvegar ásamt gerð nýrra gatnamóta við Vallaveg og Ölfusborgaveg. Heildarlengd kaflans er um 2,5 km. Til framkvæmdanna telst einnig gerð nýrra hliðarvega sem tengjast nýjum vegamótum, annars vegar Ölfusvegar frá Ölfusborgavegi að Hvammsvegi og hins vegar Ásnesvegi frá Vallavegi að Ásnesi. Inni í verkinu er einnig breikkun brúar yfir Varmá og undirgöng austan Varmár fyrir gangandi og ríðandi. Einnig eru innifaldar breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og bar bjóðandum að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Á fyrri opnunarfundi 18. desember 2018 var lesið upp hverjir skiluðu inn tilboðum. Á síðari opnunarfundi, 2. janúar 2019, var lesin upp  stigagjöf bjóðenda í hæfnismati og verðtilboð hæfra bjóðenda opnuð. Allir bjóðendur uppfylltu kröfur í hæfnismati.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Verkfræðistofan Hnit hf., Reykjavík 39,928,000 114.1 12,213
Áætlaður verktakakostnaður 35,000,000 100.0 7,285
Efla hf. verkfræðistofa, Reykjavík 29,760,062 85.0 2,045
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík 28,289,000 80.8 574
Verkís hf., Reykjavík 27,715,060 79.2 0