Opnun tilboða

Hreinsun þjóðvega á Suðursvæði 2021-2023 (EES)

27.10.2020

Tilboð opnuð 27. október 2020. Hreinsun þjóðvega á Suðursvæði 2021-2023. Verkið fellst í sópun meðfram kantsteinum og vegriðum, sópun hvinranda ásamt hreinsun grassvæða meðfram þjóðvegum með vélsópum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir. 

Helstu magntölur fyrir hvert ár eru: 

  • Sópun meðfram kantasteinum                     339.411 m 
  • Sópun meðfram vegriði                                    53.155 m 
  • Sópun meðfram miðjuvegriði                           68.662 m 
  • Þvottur og sópun hvinranda                          159.706 m  
  • Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum    34.340 m2 

Verkinu skal að fullu lokið 30. mars 2023. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Áætlaður verktakakostnaður 119.148.366 100,0 24.581
Hreinsitækni ehf, Reykjavík 94.567.866 79,4 0