Opnun tilboða

Grindavík - Viðgerð Kvíabryggju og stormpolla 2021

17.8.2021

Opnun tilboða 17. ágúst 2021. Hafnarstjórn Grindavíkur óskaði eftir tilboðum í viðgerð á Kvíabryggju og smíði stormpolla ásamt stagi og toghlera.

Helstu verkþættir eru:

·         Endurnýja u.þ.b. 420 m² af furu bryggjudekki,

·         Endurnýja u.þ.b. 60 m af kanttré og langböndum

·         Endurnýja u.þ.b. 10 skástífur og 3 stiga

·         Reka viðbótar staura u.þ.b. 7 stk.

·         Smíði, steypa og uppsetning á einum 100 tonna stormpolla ásamt stagi og toghlera.

Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 15. desember 2021.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Langeldur ehf., Mosfellsbæ 53.270.500 220,5 24.604
Köfunarþjónusta Sigurðar ehf., Keflavík 32.229.450 133,4 3.563
Lárus Einarsson s/f, Kópavogi 28.666.560 118,7 0
Áætlaður verktakakostnaður 24.153.800 100,0 -4.513