Opnun tilboða

Grindavík, endurbygging Miðgarðs 2016

1.12.2016

Hafnarstjórn Grindavíkur óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. 

Helstu verkþættir eru:

  • ·           Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju af núverandi bryggju
  • ·           Sprengja þilskurð og dýpka við þil
  • ·           Reka niður 173 stk. tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum
  • ·           Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun
  • ·           Steypa um 265 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum

Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. nóvember 2018.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
LNS Saga ehf., Kópavogi 486.469.511 122,3 202.845
Áætlaður verktakakostnaður 397.612.900 100,0 113.988
Ístak hf., Mosfellsbæ 300.084.298 75,5 16.459
Hagtak ehf., Hafnarfirði 283.625.000 71,3 0