Opnun tilboða

Arnarnesvegur (411) Rjúpnavegur - Breiðholtsbraut, eftirlit og ráðgjöf

30.1.2023

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Arnarnesvegur (411), Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut. Verkið innifelur gerð Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi. Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stígar og settjörn. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræð II. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Veitna og Mílu.

Eftir lok tilboðsfrests, þriðjudaginn 24. janúar 2023, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í útboðinu. Allir bjóðendur uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Mannvit hf., Kópavogi 167.904.500 106,6 7.443
VSB ehf., Hafnarfirði 160.461.450 101,9 0
Áætlaður verktakakostnaður 157.500.000 100,0 -2.961