Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2021, blettanir með klæðingu

28.2.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2021, blettanir með klæðingu

Helstu magntölur á ári eru:

  • Blettun á Vestursvæði með klæðingu:    180.000 m2
  • Blettun á Norðursvæði með klæðingu:    150.000 m2
  • Flutningur steinefna:                                       3.600 m3
  • Flutningur bindiefna:                                          360 m3

  Verki skal að fullu lokið 1. september 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 1. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. mars 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.