Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði, malbik 2020

22.6.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Vestfjörðum 2020.

Helstu magntölur:

Útlögn malbiks 31.000 m2
Hjólfarafylling og afrétting 10.120 m2

Verki skal að fullu lokið 1. september 2020

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 22. júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7. júlí 2020. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.