Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestur- og Norðursvæði 2023, blettanir með klæðingu

12.3.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir, blettanir með klæðingu,  á Vestursvæði og Norðursvæði árið 2023, 

Helstu magntölur eru:  

              Blettun á Vestursvæði með klæðingu:                          180.000 m2

              Blettun á Norðursvæði með klæðingu:                         150.000 m2

              Flutningur steinefna:                                                       100.000 m3 x km

              Flutningur bindiefna:                                                         35.000 m3 x km

 Verki skal að fullu lokið 1. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  13. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023. 

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign