Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði, Suðurland 2023-2024, malbik

3.2.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  yfirlagnir á Suðursvæði, Suðurland 2023-2024, malbik.  

Helstu magntölur eru: 

  Útlögn: 24.300 m2  

  Hjólfarafylling/afrétting: 9.000 m2 

  Fræsing: 11.500 m2 

  Merkingar (flákar): 213 m2 

  Merkingar (merkingarlengd): 19.290 m 

Verki skal að fullu lokið 1. ágúst ár hvort. 

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá með miðvikudeginum 8. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. mars 2023.  

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.