Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði og Vestursvæði 2019, malbik

31.3.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2019.

Helstu magntölur eru:

  • Útlögn:                                                    146.455 m2
  • Hjólfarafylling / afrétting:                     27.500 m2
  • Fræsing:                                                    10.465 m2

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi, Borgarbraut 66 í Borgarnesi og Borgartúni 7 í  Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. apríl 2019.

Skila skal tilboðum á sama stað  fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.