Yfirlagnir á Suðursvæði 2022 - 2023, klæðing
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2022-2023.
Helstu magntölur eru:
- Yfirlagnir með
einföldu lagi klæðingar með þjálbiki 380.000 m2
- Yfirlögn með kílingu 18.000 m2
- Yfirsprautun á klæðingu 18.000 m2
- Hjólfarafylling með einföldu lagi klæðingar 18.000 m2
- Flutningur steinefna 5.700 m3
- Flutningur bindiefna 660 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september hvort ár.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 31. janúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. febrúar 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.