Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði 2019, malbik

31.3.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Suðursvæði 2019.

Helstu magntölur eru:

  •  Útlögn:                                            139.580 m
  •  Hjólfarafylling/afrétting:                   2.400 m2
  •  Fræsing:                                            91.580 m2

 Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2019.

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 1. apríl 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum  fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 16. apríl 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.