Auglýst útboð

Yfirlagnir á Norðursvæði og Austursvæði 2019, malbik

20.5.2019

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Norðursvæði og Austursvæði árið 2019.

Helstu magntölur:

Útlögn malbiks 24.000 m2
Hjólfarafylling og afrétting 9.300 m2
Fræsing 18.200 m2

Verki skal að fullu lokið 15. september 2019

Útboðsgögnin verða afhent á minnislykli í móttöku Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1 á Akureyri, Búðareyri 7 Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 20. maí 2019.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. júní 2019 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.