Auglýst útboð

Yfirlagnir á Norðursvæði 2023, klæðing

12.3.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Norðursvæði árið 2023.

Helstu magntölur eru:

   - Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar                   500.000 m2        

   - Yfirlögn með kílingu                                                    25.500 m2

   - Flutningur steinefna                                                      7.000 m3 

   - Flutningur bindiefna                                                         917 m3

 Verki skal að fullu lokið 1. september 2023.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  13. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.