Auglýst útboð

Viðhald malarvega á Suðursvæði 2023-2025, Þjónustustöð í Vík, vegheflun, austur

2.4.2023

Vegagerðin býður hér með út vegheflun og snjómokstur á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Vík, austur, fyrir árin 2023 til 2025. 

Helstu magntölur á ári eru áætlaðar: 

  •    Vegheflun:  495 km  
  •    Snjómokstur með veghefli: 200 km 

Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2025.  Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.   

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningarfyrir útboðsvefinn TendSign