Auglýst útboð

Viðhald malarvega á Suðursvæði 2023-2025, Þjónustustöð á Selfossi, vegheflun

2.4.2023

Vegagerðin býður hér með út vegheflun og snjómokstur á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð á Selfossi, fyrir árin 2023 til 2025.  

Helstu magntölur á ári eru áætlaðar: 

  •     Vegheflun:  1.000 km
  •     Snjómokstur með veghefli. 200 km  

Verki skal að fullu lokið 30. apríl 2025.  Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.   

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.  

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.  

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.