Auglýst útboð

Viðgerðir á skemmdum í slitlögum 2022-2024, Suðurland

27.2.2022

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á slitlögum á Suðurlandi árin 2022 – 2024. Um er að ræða viðgerðir bæði á malbiki og klæðingum með íkasti.

Helstu magntölur eru:        

            Viðgerð með íkasti:                         850 m2           

            Malbikssögun:                                  100 m                                     

Verktími er allt árið frá 1. apríl 2022 til 1. apríl 2024.  

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með mánudeginum 28. febrúar 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.