Auglýst útboð

Viðgerðir á malbikuðum slitlögum 2020-2022, höfuðborgarsvæðið

14.2.2020

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í viðgerðir á malbikuðum slitlögum á höfuðborgarsvæðinu árin 2020-2022.


Helstu magntölur eru:                                               

Viðgerð með íkasti:
Malbikssögun:
Viðgerð með fræsun:
1.050 m2
      50 m
3.000 m2

Verkinu skal að fullu lokið 1. apríl 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudeginum  14. febrúar 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. mars 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.