Auglýst útboð

Vetrarþjónusta: Reykjanesbraut – Suðurnes 2021 – 2024 (EES)

10.6.2021

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir á Reykjanesbraut og tilteknum leiðum á Suðurnesjum 2021-2024:

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn. 

Heildarlengd vegakafla er 191 km.

Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 91.000 km. á ári.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum  9. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 13. júlí 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.