Auglýst útboð

Vestmannaeyjahöfn: Skipalyftukantur, þekja og lagnir 2021

24.5.2021

Vestmannaeyjahöfn óskar eftir tilboðum í verkið " Vestmannaeyjahöfn: Skipalyftukantur, þekja og lagnir 2021".

Helstu verkþættir eru:

  • · Rífa rafbúnaðarhús, taka upp malbik og steypta þekju.
  • ·Leggja regnvatnslagnir, niðurföll, brunn, vatnslagnir og  ídráttarrör fyrir rafmagn.
  • ·Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik 1900 m².
  • · Steypa undirstöður fyrir ljósamastur og spil.
  • · Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1100 m².
  • · Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október  2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með þriðjudeginum 25. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 8. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.