Auglýst útboð

Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Djúpadalsvegur (6087)

21.7.2021

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Djúpadalsvegar á um 5,7 km kafla.  Innifalið í verkinu er efnisvinnsla burðarlags og haugsetning til síðari nota.

Helstu magntölur eru:

- Bergskering í vegstæði         115.000 m3

- Fyllingar úr skeringum            85.800 m3

- Fláafleygar úr skeringum       28.800 m3

- Ræsalögn                                       573 m

- Styrktarlag, efnisvinnsla        16.800 m3

- Styrktarlag, útlögn                 16.300 m3

- Burðarlag, efnisvinnsla         21.000 m3

 Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 21. júlí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. ágúst 2021. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.