Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, 2. áfangi (EES)
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 12,6 km kafla. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði en að hluta til í núverandi vegstæði. Inn í verkinu er einnig gerð námuvegar að námu í Trölladal og gerð tveggja áningarstaða.
Helstu magntölur eru:
- Bergskering í vegsvæði 495.200 m3
- Bergskering í námu 22.600 m3
- Fyllingar úr skeringum 509.400 m3
- Fláafleygar úr skeringum 220.500 m3
- Ræsalögn 1.250 m
- Styrktarlag 57.500 m3
- Burðarlag 24.000 m3
- Klæðing 106.400 m2
- Vegrið 1.660 m
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. júlí 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.