Auglýst útboð

Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, áfangi 2- Eftirlit og ráðgjöf

3.3.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðavegur (60) Um Dynjandisheiði, áfangi 2. Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 12,6 km kafla. Vegurinn er að mestu byggður í nýju vegsvæði en að hluta í núverandi vegsvæði.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 15. júlí 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 3. mars 2023  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. apríl 2023*. 

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Föstudaginn 21. apríl 2023 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

*Við birtingu auglýsingarinnar var tilboðsfrestur til 4. apríl 2023. Ákveðið hefur verið að lengja tilboðsfrestinn til 18. apríl og breytast aðrar lykildagsetningar útboðsins í samræmi við það.